Lopaflokkurinn
Ýmsar skemmtilegar síður
13.2.2008 05:14:37 / sigga

Um Siggu

Hæhæ....ég heti Sigríður Alma Gunnsteinsdóttir.

Ég er nú loksins orðin 20 ára :)

Ég er Kópavogsbúi í húð og hár. Ég er í Hjálparsveit skáta Kópavogi eins og hinar lopa-skvísurnar. Annars er ég bara að læra verkfræði í Háskóla Íslands og er núna á 2.ári ;) Mér finnst geggjað gaman að fara á línuskauta og að fara í sund ;) Ég vann í Sundlauginni Versölum síðasta sumar sem laugarvörður sem að er bara mjög fín vinna. Mér finnst líka mjög gaman að prjóna og er einmitt með eina lopa-peysu á prjónunum núna (þegar þetta er skrifað) svo finnst mér líka mjög gaman að vinna með fiskiroð og er ég aðeins búin að vera að dunda mér að búa til armbönd úr fiskiroði og leðri :)
Annars er ég á föstu strákar mínir svo að það þýðir ekkert að reyna við mig því að ég er á mjög föstu með honum Ásgeiri mínum :)
Humm....hvað get ég sagt ykkur meira??? Nei ég veit ekki heldur hvað ég get sagt ykkur meira....
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan