Lopaflokkurinn
Ýmsar skemmtilegar síður
24.07.2007 17:04:55 / ragna

Í sól og sumaryl

jæja er ekki kominn tími á blogg ???

Það er bara svo mikið að gera að það gefst ekki tími til að setjast aðeins fyrir framan tölvuna.

Núna er ég á aukavakt uppi á spítala, og það er rólegt (kraftaverkin gerast enn!!!), Þannig að ég ákvað að skella inn einu bloggi :D:D:D
Veit reyndar ekki alveg hvar ég á að byrja það er svo margt búið að gerast í sumar:

1. Gekk Laugaveginn með 23 krakkaorma, það gekk bara geðveikt vel, það var sól allan tímann og alveg æðislegir krakkar. Er búin að búa til myndasíðu fyrir útivistarskólann og það er linkur hér til hliðar, ef þið viljið skoða myndir úr ferðinni.

2. Ég komst inn í læknisfræði!!!! geðveikt gaman, þannig að ég er víst ekki á leiðinni til Danaveldis, og þið sitjið uppi með mig hér á skerinu, allavega næstu sex árin;););).

3. Fór sem skálavörður inn í Þórsmörk eina helgi með Elvari. Vorum í langadal og fengum skálann í Skáldagili út af fyrir okkur, rosa rómó!!!. Verkefni helgarinnar voru meðal annars klósettþrif sem Elvar alveg hreint brilleraði í 8|8|8| og svo lentu 11 Finnar í sjálfheldu inni í Hvannárgili, og var alsherjar útkall að bjarga þeim niður. það var nú bara nokkuð gaman, maður fékk loksins að gera eitthvað í útkalli !! En það var nú fyrir öllu að þau komust öll heil niður. Á laugardagskvöldinu kom svo einhver brjálaður maður keyrandi alla leið inn í Þórsmörk á fjórhjóli og fór sko létt með Krossánna. Var þar mættur hann Sigursveinn Óskar með hana Sonju sína aftan á. Algjörir snillingar þar á ferð !!! Seinna um kvöldið komu svo Halla og Torfi og Ástþór og Hanna í heimskókn, en þau voru búin að vera á ferðalagi á fjöllum.

4. Var að koma úr ferðalagi þar sem við fórum kringum Vatnajökull. Ég, Elvar, Halla og Torfi lögðum af stað á síðasta fimmtudag í okkar árlegu jeppaferð (er þetta ekki orðið árlegt ???). Nú var stefnan tekin norður fyrir Vatnajökul. Fórum Gæsavatnaleið, og inn í Dreka þar sem við hittum fullt af góðu fólki. Þar er hún Arna Björg skála/landvörður og svo komu einnig drengirnir í hálendisgæslunni þá um kvöldið, mikið gaman þar. Skelltum okkur í Víti og að sjálfsögðu fóru allir naktir oní !!!!:D:haha::haha:. Daginn eftir var svo brunað á Kárahnjúka, og Hafrahvammagljúfur skoðuð, fórum í bað í Laugavalladal og svo lá leiðin niður í Atlavík, í blíðuna þar!!!. Svo var nú farið að halda í suðurátt, Kíktum örstutt inn í Lónsöræfi á lengstu göngubrú landsins, og eyddum svo kvöldinu á Hala í Suðursveit með frændfólki hans Torfa. Á mánudeginum vöknðum við upp í rigningu, en létum það ekki á okkur fá og skoðuðum Fjaðrárgljúfrin á leiðinni heim, þar sem sumir blotnuðu meira en aðrir;););). mæli eindregið með því að vaða inn þessi gljúfur, tekur ekki langan tíma og þau eru algjör perla!!!
Ætla að setja inn myndir við fyrsta tækifæri!!

5. Var að kaupa mér nýjustu Harry Potter, þannig að þið sjáið mig ekkert á næstunni8)8)

6. get ekki beðið eftir að komast til Spánar

Held að þetta sé nú orðið gott af fréttum í bili, vona að þið hafið ekki gefist upp á lestrinum !!!

Bless í bili

Ragna Sif


» 5 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan