|
|
28.02.2008 10:22:51 / ragna
Búin að setja inn fullt af myndum frá Austurríki, Snjóflóðanámskeiði og nokkrar party myndir !!!
Allt undir Rögnumyndir 2
Kv Ragna Sif
»
25.02.2008 11:54:45 / ragna
loksins loksins loksins... prófin búin!!! Það gekk nú bara svona ágætlega held ég, þrátt fyrir verstu ælupest sem ég hef fengið, og það daginn fyrir próf !! Mætti í prófið ekkert búin að borða í sólarhring... með powerade brúsann og massaði þetta   . Svaka gaman !!!! Svo er bara ljúfa lífið í skólanum, alltaf frí fyrir hádegi!! En nú eru svo bara skemmtieg heit tekin við !! Skellti mér á Sigló um helgina með hjálparsveitinni á massa skemmtilegt snjóflóðanámskeið, Það hefði nú reyndar mátt vera aðeins meiri snjór, en þetta bjargaðist!!! Sleðastrákarnir komu með og voru í því hlutverki að draga okkur upp brekkurnar svo að við gætum skíðað niður    Algjör snilld. Svo vorum við nú líka að hjálpa til við snjóflóðanámskeiðið sem nýliðarnir voru á !! Svo er nú stefnan tekin á skíði núna í vikunni, meira að segja opið í skálafelli !!! Það væri nú yndislegt að skella sér þangað eins og eina kvöldstund!!! En annars er ég nú bara farin að hugsa til páskanna og láta mig hlakka til. Sem sagt mikill tími útivistar framundan !!! En annars var það nú lítið fleira, verið nú dugleg að kommenta!! Kv ragna PS myndir frá Austurríki koma í þessari viku !!! ÉG LOFA   
»
10.02.2008 18:25:00 / ragna
Jei þetta er alvega geggjað gaman, próf á morgun og annað eftir viku, gerist ekki betra !!!!!. Eða ekki   . En annars er ég ekki búin að taka þessum áfanga allt of hátíðlega, búin að skreppa í viku til austurríkis á skíði og fleira skemmtilegt. Maður verður nú að lifa lífinu líka svona að einhverju leiti. En er komin með háleit markmið þegar þessum blessuðu prófum líkur.....þá verður sko farið á fjöll !!! En annars er nú ósköp lítið að frétta. Fór í útkall með hjálparsveitinni á föstudaginn og ég held að þetta hafi nú bara verið mesta rok sem ég hef upplifað !!! Loksins almennilegt óveðursútkall !!! Geggjað gaman. Svo var fimmtugsafmæli heima í gær, systir hans pabba átti afmæli, en hún býr í Noregi. Maðurinn hennar bara sótti hana í vinnuna úti á föstudaginn og sagði að hann væri að fara með hana í óvissuferð og keyrði hana út á flugvöll!!! En ekki nóg með það heldur halda þau svo áfram til Florida á mánudaginn og hún veit bara ekkert af því, heldur að hún sé að fara heim til Noregs!!! Haha . EN þar sem við krakkarnir vorum ekki alvega að fíla svona fínt afmælidboð skelltum við okkur á Laugavatn á þorrablót. Mín fékk bara að setjast undir stýri á Patrolnum þar sem hann Elvar elskan var kominn vel í glas, og mín fór bara í jeppó !!! ´Tók okkur tvo og hálfan tíma að komast þangað, það var svo mikil snjókoma og skafrenningur að það sást ekki á milli stika. Geggjað gaman !!! SVo var nú tjúttað smá á ballinu þar, en farið snemma heim þar sem ég er að fara í próf . Fyrsta verk mitt eftir prófið verður að koma myndum frá Austurríki inn á myndasíðuna mína !!!. Mikið búið að argast í mér að ég sé sú eina sem er ekki búin að setja myndir inn (humm, humm Dóri !!) .... en þetta kemur allt með kalda vatninu. Held að þetta sé orðin góð langloka í bili, skal vera duglegri að blogga eftir prófin !!! Ragna
»
04.01.2008 21:50:02 / sigga
Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár allir saman! Vona að það séu ekki allir hættir að lesa bloggið þrátt fyrir þvílíkan trassaskap okkar, ég veit að við höfum ekki staðið okkur vel að blogga undanfarnar vikur og mánuði. Held að áramótaheit lopaflokksins í ár sé að vera duglegri að blogga  Unnur fær skammarverðlaun síðasta árs fyrir að hafa bloggað 0 sinnum!!!!  Stór hluti af lopa-skvísunum er á leiðinni til Austurríkis á skíði núna 19.jan og það verður massa gaman!  Annars er ég ENN að bíða eftir niðurstöðum úr desemberprófunum, ekkert mál ég er ekkert stressuð neitt (NOT). Gott að kennararnir skuli ekkert vera að stressa sig allt of mikið yfir þessum prófum okkar! Jæja best að halda áfram að hafa það gott, allavega í tvo daga til viðbótar því að þá byrjar skólinn aftur. Ég vona bara að allir hafi haft það gott í jólafríinu. Kv.Sigga
»
03.10.2007 12:19:47 / ragna
Já í dag náði ég þeim merka áfanga að sprauta mann í fyrsta skipti !! Hélt nú að það yrði mun erfiðara, en nei það bara gekk eins og í sögu og hún Jónína var nú bara nokkuð hress eftir á  < Hún fékk nú líka að sprauta mig og ótrúlegt en satt, að þá leið mér nú bara nokkuð vel eftir á og lá ekki við yfirliði   Ég er sem sagt stödd á Fyrstu hjálp í óbyggðum námskeiði á Gufuskálum og það er nú bara ótrúlega gaman og búin að læra alveg fullt !!! þetta er nú samt ansi langt, heilir 8 dagar og ekkert frí, lært frá 8 á morgnanna til 11 á kvöldin  Kem svo heim og fer beint í mjög þungan líffærafræði kúrs, þannig að við sjáumst bara um næstu jól  Nei bara grín, ég ætla nú ekki alveg að missa mig. Annars er nú bara allt gott að frétta, gengur vel í skólanum en sem komið er, þó að það sé nú mest lítið sem ég er búin að gera.< Er líka orðin eins og allir hinir Íslendingarnir, keypi ér kort í sprort-og baðhúsinu, þannig að nú þarf bara að taka á því. Ætla svo að reyna að vera dugleg við að fara á fjöll svona inn á milli. Annars finnst mér orðið óendanlega stutt í jólin. Ekki meira að frétta af mér í bili, en ég er alveg til í að fara að heyra fréttir af ykkur hinum lopastelpunum    Kveðja frá Gufuskálum Ragna
»
14.09.2007 17:12:58 / ragna
»
28.08.2007 13:51:49 / ragna
Ég held að þetta sé nú stysta sumar sem ég hef nokkurn tíma upplifað, það hvarf !!!! En ég er byrjuð á fullu í skólanum núna, og finnst bara nokkuð gaman. Er víst að fara í einhverja nýnemaferð á föstudaginn, held samt að það endi bara með einhverju fylliríi og rugli!!!! bara gaman. Svo á nú að reyna að taka stefnuna á Hólahátíð í laugardag !!!! held að það verði geggjað gaman. Er nú samt svona að jafna mig eftir ævintýri helgarinnar ennþá. Fór í útkall inn í Skaftafell og þar fengum við það verkefni að ganga Sandfellsleiðina upp á Hnjúk og athuga sprungur þar. Þetta var nú samt meira eins og góð ferð, en ekki útkall, glampandi sól og blíða þegar líða fór á daginn.!!! Svo varð nú einhver skilmisingur þannig að við fengum ekki þyrluna niður og urðum að gjöra svo vel og ganga !!!! En það var nú minnsta málið þar sem leit var hætt og við þurftum ekki að halda áfram daginn eftir. Og auðvita tókst mér að gleyma sólgleraugunum í bænum, og brann svonalíka vel í augunum, ég ætla aldrei að læra Flottar myndir eru á heimasíðunni hjá Olgu og Dóra.
Var að enda við að henda nokkrum vel völdum myndum frá Spáni inn á myndasíðuna mína, frábær ferð þar, gott að fá smá afslöppun fyrir skólann. En hvað er samt í gangi með þetta blessaða flugfélag sem heitir iceland express!!! Ég held að mér sé ekki ætlað að fljúga með þeim. Þeir hafa einu sinni hætt við flugið mitt, ég hef einu sinni nauðlent með þeim, og núna áttum við ekki nóg eldsneyti til að komast til Íslands þannig að það varð að millilenda í Skotlandi !!!   jæja ætla að segja þetta gott í bili, á víst að vera að læra  ps. á enn eftir að laga myndirnar frá ferðinni kringum Vatnajökul, geri það við fyrsta tækifæri
»
08.08.2007 09:24:01 / ragna
Var að setja inn myndir frá ferðalaginu kringum
vatnajökul!!!
Er á leiðinni á Gufuskála, þannig að ég hef ekki tíma til
að skrifa meira !!!
bless í bili
Ragna
»
24.07.2007 17:04:55 / ragna
jæja er ekki kominn tími á blogg ???
Það er bara svo mikið að gera að það gefst ekki tími til að setjast
aðeins fyrir framan tölvuna.
Núna er ég á aukavakt uppi á spítala, og það er rólegt
(kraftaverkin gerast enn!!!), Þannig að ég ákvað að skella inn einu
bloggi   
Veit reyndar ekki alveg hvar ég á að byrja það er svo margt búið að
gerast í sumar:
1. Gekk Laugaveginn með 23 krakkaorma, það gekk bara geðveikt vel,
það var sól allan tímann og alveg æðislegir krakkar. Er búin að búa
til myndasíðu fyrir útivistarskólann og það er linkur hér til
hliðar, ef þið viljið skoða myndir úr ferðinni.
2. Ég komst inn í læknisfræði!!!! geðveikt gaman, þannig að ég er
víst ekki á leiðinni til Danaveldis, og þið sitjið uppi með mig hér
á skerinu, allavega næstu sex árin  .
3. Fór sem skálavörður inn í Þórsmörk eina helgi með Elvari. Vorum
í langadal og fengum skálann í Skáldagili út af fyrir okkur, rosa
rómó!!!. Verkefni helgarinnar voru meðal annars klósettþrif sem
Elvar alveg hreint brilleraði í   og svo lentu 11 Finnar í
sjálfheldu inni í Hvannárgili, og var alsherjar útkall að bjarga
þeim niður. það var nú bara nokkuð gaman, maður fékk loksins að
gera eitthvað í útkalli !! En það var nú fyrir öllu að þau komust
öll heil niður. Á laugardagskvöldinu kom svo einhver brjálaður
maður keyrandi alla leið inn í Þórsmörk á fjórhjóli og fór sko létt
með Krossánna. Var þar mættur hann Sigursveinn Óskar með hana Sonju
sína aftan á. Algjörir snillingar þar á ferð !!! Seinna um kvöldið
komu svo Halla og Torfi og Ástþór og Hanna í heimskókn, en þau voru
búin að vera á ferðalagi á fjöllum.
4. Var að koma úr ferðalagi þar sem við fórum kringum Vatnajökull.
Ég, Elvar, Halla og Torfi lögðum af stað á síðasta fimmtudag í
okkar árlegu jeppaferð (er þetta ekki orðið árlegt ???). Nú var
stefnan tekin norður fyrir Vatnajökul. Fórum Gæsavatnaleið, og inn
í Dreka þar sem við hittum fullt af góðu fólki. Þar er hún Arna
Björg skála/landvörður og svo komu einnig drengirnir í
hálendisgæslunni þá um kvöldið, mikið gaman þar. Skelltum okkur í
Víti og að sjálfsögðu fóru allir naktir oní !!!!  .
Daginn eftir var svo brunað á Kárahnjúka, og Hafrahvammagljúfur
skoðuð, fórum í bað í Laugavalladal og svo lá leiðin niður í
Atlavík, í blíðuna þar!!!. Svo var nú farið að halda í suðurátt,
Kíktum örstutt inn í Lónsöræfi á lengstu göngubrú landsins, og
eyddum svo kvöldinu á Hala í Suðursveit með frændfólki hans Torfa.
Á mánudeginum vöknðum við upp í rigningu, en létum það ekki á okkur
fá og skoðuðum Fjaðrárgljúfrin á leiðinni heim, þar sem sumir
blotnuðu meira en aðrir  . mæli eindregið með því að vaða inn
þessi gljúfur, tekur ekki langan tíma og þau eru algjör
perla!!!
Ætla að setja inn myndir við fyrsta tækifæri!!
5. Var að kaupa mér nýjustu Harry Potter, þannig að þið sjáið mig
ekkert á næstunni 
6. get ekki beðið eftir að komast til Spánar
Held að þetta sé nú orðið gott af fréttum í bili, vona að þið hafið
ekki gefist upp á lestrinum !!!
Bless í bili
Ragna Sif
»
27.06.2007 22:42:48 / ragna
Já það má nú segja það að sumarið sé nú bara að fljúga í
burtu!!!
Ég fattaði það allt í einu að það væri bara fyrsta helgin í Júlí um
næstu helgi..
En maður er nú búinn að bralla ýmislegt, ég segi það ekki.
Byrjaði að vinna strax eftir læknisfræðiprófið á Gufuskálum, og
aldrei þessu vant var bara gott veður, meira að segja sól !!! Hvað
biður maður um meira ???
Svo strax daginn eftir að ég kom heim var auðvita haldið á
fjöll.
Ég, Halla og Svava sem er að vinna með mér gengum frá Hólaskjóli og
niður í Þórsmörk á 3. dögum. Alveg snilldarferð í alla staði, þó að
þetta hefði verið svolítið löng ganga.
Ferðaplanið breyttist nefninlega aðeins. UPphaflega planið var að
ganga í Strút og hitta þar nokkra félaga sem ætluðu að skutla okkur
niður í emstrur og þaðan átti svo að vera léttur dagur niður í
Mörk.
En þar sem Syðra fjallabak var enn lokað kom Svava með með þá
skemmtilegu hugmynd að labba bara alla leið, þannig að við vorum að
labba hátt í 30 km á dag, fyrstu tvo dagana !! Nokkuð
gott.   
Svo hittum við eitthvað af liði í Mörkinni á laugardeginum, tókst
meira að segja að vekja Olgu og Dóra greyin, þar sem þau
voru steinsofandi eftir að hafa gengið Fimmvörðuhálsinn um
nóttina.
Svo er nú bara búið að liggja í leti í bænum núna í vikunni, og
njóta góða veðursins.!!!
Á morgun er svo stefnan tekin á Laugarveginn með 24 krakkagríslinga
úr Útivistarskólanum, það verður massa stuð !!!
En ætla að segja þetta gott í bili !!
Kv. Ragna
Ps. Bjó mér til nýja myndasíðu þar sem hin var orðin full,
og kom inn myndum frá Hrútfjallstindum og myndum frá helginni!! Það
er linkur hér til vinstri undir Rögnumyndir 2  
»
28.05.2007 21:27:22 / ragna
hæhæ var að enda við að setja inn myndir bæði frá
Hvítasunnuhelginni og frá nemendasýningunum!!! Náði reyndar ekki að
klára þar sem ég var komin yfir limitið eða eitthvað svoleiðis,
þoli ekki svona vitleysu !!!
En allavega nenni ég ekki að skrifa ferðasögu núna!!! kemur
seinna  Annars var þetta alveg frábær ferð!!!
kveðja Ragna
»
14.05.2007 12:44:38 / halla
Góðan og blessaðan!
Sit hérna við skrifborðið
mitt og horfi út um gluggann! Það er geggjað veður... og mig
langar út!
Það er hrikalegt að vinna inni þegar það
er svona veður 
Hvernig er þetta annars stelpur? Er
lopaflokkurinn að deyja?
Ég er ekki alsaklaus og get ekki sagt að
ég hafi verið mjög dugleg við að sporna gegn því með því að
blogga!
Annars svona helstu fréttir... maí er
búinn að vera og er alveg pakkaður af skemmtun og öðru
sniðugu!
- Ég var að kaupa mér línuskauta!!
Við Torfi fórum á línuskauta í gær og það var voða
gaman.
- Sunnudag fyrir viku síðan fórum
við í dagsferð upp á langjökul á nýja sleðanum hans Torfa, það var
algjör snilld og veðrið var frábært.
- Ég byrjaði á meiraprófinu í síðustu
viku! og verð á því á kvöldin næstu vikurnar.... sem sagt langir
dagar framundan hjá mér!
- Næstu helgi er landsbjargarleikar og
árshátíð landsbjargar! Og það má að sjálfsögðu taka það fram
að okkar lið (sem skartaði tveimur lopaskvísum) var í 3. sæti
á síðustu landsbjargarleikum! Ég vona að ég ná að vera aftur
með en það er nú samt eitthvað tvísýnt vegna meiraprófs!!!!
Verðum við ekki að massa þetta Ragna??
- Þar næstu helgi er stefnan svo að
sjálfsögðu tekin á enduro keppni á Klaustri! Þar sem ég og Andrea
ætlum að styðja okkar mann hann Torfa!
Jæja þetta var semsagt helst í
fréttum.....
Chao!!
Halla
»
25.04.2007 19:08:28 / ragna
Jæja ég er loksins búin að henda inn nokkrum myndum frá
Fjallabjörgunarnámskeiðinu sem við fórum á , snilldar námskeið og
geggjað gaman, hvað er betra en að hanga í spotta heila
helgi??  
Annars er nú lítið að frétta, er bara á fullu í lærdómi og vinnu og
býst við því að það muni taka allan minn tíma út maí!!! En þá
verður sko stefnan tekin á landsbyggðina það sem eftir lifir
sumars, get ekki beðið !!!
En ætla að fara að drífa mig á sjúkraæfingu út í skemmu hjá henni
Jónínu !!
bæjó
Ragna
»
09.04.2007 17:14:04 / ragna
»
08.04.2007 17:13:42 / ragna
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Dagsetning
28. janúar 2012
|